Kennari getur flutt námsgögn t.d. möppur og skrár, verkefni eða próf, á milli námskeiða sem hann kennir eða hefur kennt. Þannig er hægt að endurnýta efni í stað þess að búa það til upp á nýtt. Gögnin eru í raun afrituð og afritið flutt. Flutningurinn hefur því engin áhrif á kennsluvef námskeiðsins þaðan sem efnið er tekið. Þegar próf eru flutt á milli námskeiða fylgir spurningabankinn með. Nemendagögn s.s. einkunnir eða verkefnaskil flytjast ekki með.
* Þessi aðgerð á við þegar efnið sem flytja á er í sama Moodle-kerfi.
Leið: Kennslusíða > Tannhjól > Flytja inn
- Opnið námskeiðið sem á að fá gögnin (nýja námskeiðið) og farið í flytja inn undir tannhjólinu í efra hægra horni (sjá mynd).
- Veljið námskeiðið sem er með gögnin og smellið á áfram.
Ef kennari hefur aðgang að mjög mörgum námskeiðum er hægt að nota leitina fyrst til að finna námskeiðið sem um ræðir. - Næst þarf að velja hvers konar hluti á að flytja. Takið hak úr við atriði sem ekki stendur til að flytja.
- Ef ekki á að flytja próf er óþarfi að flytja spurningabankann (Athugið að Moodle hefur þá annmarka að flytja allan spurningabankann með þó að einungis eitt próf sé flutt inn).
- Síur er oftast óþarfi að flytja inn, þar sem einfalt er að breyta stillingum á þeim í hverju námskeiði.
- Ef hópar og klasar eru fluttir koma þeir tómir, þar sem nemendur flytjast ekki með.
Smellið á áfram.
- Á næstu síðu eru valin einstök viðfangsefni eða aðföng sem á að flytja. Hér er allt sjálfvalið. Takið hak úr reitum við atriði sem ekki á að flytja inn í námskeiðið.
Athugið að flytja ekki „Tilkynningar kennara“ (Fréttaþing), það verður sjálfkrafa til á kennsluvef.
Smellið á Áfram.
- Að lokum er smellt á flytja inn.